News
Seed Forum Iceland - 8. október í Arion Banka
Skráning er hafin hér á siðunni
Sprotaþing Íslands heldur tólfta Seed Forum Iceland þingið í Arion Banka 8. október 2010. Meðal fyrirlesara er Tonni Bullow-Nielsen, partner í Vækstfonden í Danmörku sem er stærsti áhættufjárfestingarsjóður Danmerkur.
Flest framsæknustu sprotafyrirtæki Íslands hafa tekið þátt í Seed Forum Iceland og hefur árangurinn verið talsverður. Mörgum þeirra hefur tekist að afla sér hlutafjár í gegnum Seed Forum Iceland og ráðstefnur erlendis. Ávinningur ráðstefnunnar er þó enn meiri en svo að hann verði talinn í krónum fjárfesta þar sem umræðan um fyrirtækin í kringum ráðstefnuna er góð kynning fyrir fyrirtækin og hefur liðkað fyrir viðskiptum og orðið til að vekja áhuga viðskiptavina og annarra hugsanlegra samstarfsaðila. Lærdómsferli þeirra fyrirtækja sem taka þátt í Seed Forum Iceland hefur einnig verið mikið þar sem stjórnendur fyrirtækjanna læra að kynna viðskiptahugmyndir sínar fyrir fjárfestum og eru miklu betur hæfir til þess meta virði fyrirtækjanna og til að semja við fjárfesta. Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska frumkvöðla sem þurfa oft að leita út fyrir landsteinana eftir fjármagni. Það segir sitt um áhuga fjárfesta að þeir koma aftur og aftur til þess að fylgjast með nýjum sprotafyrirtækjum á Íslandi.
Íslensk fyrirtæki sem kynnt á Seed Forum Iceland eru m.a.:
AGR, Bio-Gels, CCP, GloboDent, Green Diamond, New Development, Orf Líftækni, Simdex, 3-plús, Stiki, Caoz, Mentis Cura, EcoProcess, Eykur, Genís, Lyfjaþróun, Mentor, Gogogic, Zemetech, Kine, Vdeca, A-Game Company, Carbon Recycling International, Eff2, Accel Jet, Hersir Investment, Mind, Trackwell, Gogoyoko, Tourist-TV, Marimo, E-Label, Responsible Surfing, VJ ? Entertainment, Clara, On the Rocks Games, Amivox, Remake-Electric, MindGames, Kerecis, Tellme Twin, Spennandi, Belgingur, Andvari, Nuevo Vehicles, Greenqloud


